Fyrirspurn
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn, um kostnað vegna skýrslu Mál nr. US220022 Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um heildarkostnað greiningarvinnu og skýrslugerðar umhverfis- og skipulagssviðs um áhrif hámarkshraðaáætlunar Reykjavíkur á ferðatíma Strætó. Um var að ræða innanhúsvinnu. Óskað er eftir upplýsingum um tímafjölda sem fór í verkið og annan kostnað sem og heildarkostnað. Beðið var um verkið af meirihlutanum og Strætó sem hafði áhyggjur af því að lækkun hámarkshraða myndi hægja á Strætó. Frestað.