Fyrirspurn
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurnir, um hraðahindranir Mál nr. US210365 Í Reykjavík eru hraðahindranir í nokkrum útgáfum, stundum þrenging, stundum einstefna þar sem einn og einn bíll fer í gegn í einu og stundum koddar/bungur í mismunandi gerðum. Farið er eftir norskum leiðbeiningum í þessu efni. Verið er að setja tugi af alls konar hraðahindrunum um þessar mundir. Spurt er um fjölda og gerð þeirra hraðahindrana sem verið er að gera núna (sem eru í vinnslu) og kostnað? Hvað er fyrirhugað að setja margar hraðahindranir árið 2022? Hvernig gerðar eru þær? Hver er fyrirhugaður kostnaður? Hvað margar af þessum hraðahindrunum eru einskorðaðar við 30 km götur? Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.