Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta, um að stytta afgreiðslutíma þeirra tillagna sem ungmenni leggja fram á árlegum borgarstjórnarfundi og að upplýsingar um útvinnsluferlið verið aðgengil
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
26. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta, um að stytta afgreiðslutíma þeirra tillagna sem ungmenni leggja fram á árlegum borgarstjórnarfundi og að upplýsingar um útvinnsluferlið verið aðgengilegar         Mál nr. US210372 Lagt fram til upplýsinga bréf forsætisnefndar Reykjavíkur dags. 9. desember 2021 þar sem fram kemur að samþykkt hefur verið að stytta afgreiðslutíma þeirra tillagna sem fulltrúar í ungmennaráði leggja fram á árlegum borgarstjórnarfundi og að upplýsingar um útvinnsluferlið verið aðgengilegar. Einnig er lögð fram umsögn Forsætisnefndar dags. 2. desember 2021, verklagsreglur skrifstofu borgarstjórnar um fundi og meðferð tillagna Reykjavíkurráðs ungmenna dags. 13. febrúar 2015 og bréf Forsætisnefndar dags. 16. júní 2021. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Fulltrúi Flokks fólksins styður heilshugar tillögu fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta um að stytta afgreiðslutíma tillagna þeirra sem ungmenni leggja fram á árlegum fundi borgarstjórnar og að upplýsingar og úrvinnslu ferlið verði aðgengilegar. Tafir á afgreiðslu mála og ógegnsæi í úrvinnsluferli borgarinnar er stórt vandamál nánast hvert sem litið er innan borgarkerfisins. Þó er þetta einmitt eitt af því sem þessi meirihluti lofaði að laga svo um munaði. Það hefur oft tekið heila eilífð fyrir svið/nefndir  Reykjavíkurborgar að afgreiða umsagnir þannig að málin geta aftur komið á dagskrá til afgreiðslu. Dæmi eru um að meira en eitt ár og jafnvel eitt og hálft ár hafi liðið frá því að tillaga er lögð fram og þar til hún kemur til afgreiðslu á fundi. Fulltrúi Flokks fólksins hefur skilning á að þetta taki einhvern tíma enda mikið af málum sem lögð eru fram en heilt ár og meira er of mikið. Þá eru málin iðulega búin að missa marks, jafnvel orðin úrelt. Vonandi mun afgreiðslutími almennt séð styttast, hvaðan svo sem þau berast,  frá ungmennaráðum, borgarbúum eða frá kjörnum fulltrúum ef því er að skipta. Fylgigögn Tillaga fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta