Mýrargata 21 og 23/Rétttrúnaðarkirkjan, breyting á deiliskipulagi     (01.116)    Mál nr. SN220043 Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Nýle
Mýrargötu 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
26. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mýrargata 21 og 23/Rétttrúnaðarkirkjan, breyting á deiliskipulagi     (01.116)    Mál nr. SN220043 Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna Mýrargötu 21 og 23. Í breytingunni felst að sameina lóðirnar í eina lóð. Byggingarmagn helst óbreytt sem og stærð og umfang bygginganna sem helst óbreytt. Nýtingarhlutfall lóðar breytist lítillega þar sem tengigangur, sem þegar er heimilaður í gildandi deiliskipulagi að hámarki 50m2, er talinn með í fermetrum bygginganna. Við sameiningu lóðanna verða fjögur bílastæði á lóðinni, þar af eitt fyrir hreyfihamlaða, samkvæmt uppdr. Arkiteó, dags. 20. janúar 2022. Lagt er til að framangreind tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði samþykkt án auglýsingar eða grenndarkynningar þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs. Ingvar Jón Bates Gíslason verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. Fylgigögn Mýrargata 21 og 23/Rétttrúnaðarkirkjan