Áhrif hámarkshraðaáætlunar Reykjavíkur á Strætó, niðurstöður greiningarvinnu, kynning         Mál nr. US220012 Lögð fram og kynnt skýrsla frá umhverfis- og skipulagssviði, dags. 24. janúar 2022, um áh
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
26. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Áhrif hámarkshraðaáætlunar Reykjavíkur á Strætó, niðurstöður greiningarvinnu, kynning         Mál nr. US220012 Lögð fram og kynnt skýrsla frá umhverfis- og skipulagssviði, dags. 24. janúar 2022, um áhrif hámarkshraðaáætlunar Reykjavíkur á ferðatíma Strætó. Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun: Þökkum ítarlega og vandaða greiningu. Niðurstöðurnar sýna að áhrif nýs hámarkshraða á flestar leiðir strætó eru hverfandi. Sú sviðsmynd sem líklegust er bendir til þess að meðaláhrifin verði á bilinu 0,1 til 2,9% af ferðatíma, sem samsvarar stærðargráðunni 5 til 58 sekúndur á hverja ferð. Það er vel ásættanlegt ef litið er til þess mikla ávinnings sem lægri hámarkshraði hefur í för með sér fyrir nærumhverfið, loftslagið og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Heildaráhrifin fyrir strætó gætu orðið jákvæð að því leyti að þó að ferðatími hugsanlega breytist aðeins þó lítið sé verði það meira aðlaðandi að komast að strætó og þar af leiðandi meira aðlaðandi að nota strætó. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: Það gefur auga leið að um leið og hámarkshraði er lækkaður þá hægist á Strætó eins og tafirnar séu nú ekki nægar fyrir. Það þurfti ekki að gera skýrslu um það. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Beðið var um þessa vinnu m.a. af Strætó sem hafði áhyggjur af því að lækkun hámarkshraða myndi hægja á Strætó. Rökrétt er að ef hraði ökutækja lækkar aukist ferðatími, fólk er lengur á leiðinni og það er ekki vegna neinna hindrana endilega heldur einfaldlega vegna að við lýði er ákveðinni hámarkshraði. Niðurstaðan er sú að lækkun á hámarkshraða hefur ekki áhrif á ferðatíma Strætó, alla vega ekki mikil áhrif. Þetta kemur ekki á óvart enda er strætó varla að aka um borgina á einhverjum hraða að heitið geti. Fulltrúi Flokks fólksins veltir því upp hvort ekki eigi eftir að koma meiri reynsla á þessi mál? Eitt er að gera lærða skýrslu um málið en svo á eftir að reyna á þetta. Ýmsar aðrar b