Fyrirspurn
Hólmsheiði 2. áfangi - Deiliskipulag athafnasvæðis - SN210147 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. ágúst 2025 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 14. ágúst 2025, þar sem gerðar eru athugasemdir við birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda vegna reiðleiða, veitukerfa, minja og stafræns deiliskipulags sbr. bréf stofnunarinnar. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt deiliskipulags- og skýringaruppdr. A2F arkitekta, dags. 31. október 2024, síðast br. 28. ágúst 2025, og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. ágúst 2025. Lagt fram.