Drafnarstígur 5
Drafnarstígur 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1184
18. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
530704-2460 Pre ehf, Drafnarstíg 5, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja garðskála á austurhlið, stækka anddyri, ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum kjallara og öðrum breytingum á einbýlishúsi á lóð nr. 5 við Drafnarstíg. Áður gerður kjallari: 19,8 ferm., 43,6 rúmm. Stækkun nú: 16,5 ferm., 42,2 rúmm. Eftir stækkun, samtals: 106,7 ferm., 313,9 rúmm. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. maí 2022 og samþykki eigenda Drafnarstígs 3 og 5A og Bræðraborgarstígs 10 og 12, árituð á uppdrátt. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. október 2022 fylgir erindi, einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 14. október 2022. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum Drafnarstíg 3, 5A og 7 og Bræðraborgarstíg 10, 10A og 12, frá 12. september til og með 10. október 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án
byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar.
Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar. Með vísan til samþykktar
borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar
en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði
gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100340 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009205