Fyrirspurn
Helena Ísaksdóttir, Langagerði 118, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera garðskála við 1. hæð, færa aðalinngang til, auk þess sem gerð
er grein fyrir áður gerðum breytingum, þar sem m.a. er búið að breyta innra skipulagi
fyrstu hæðar og gerð hurð út í garð á vesturhlið húss á lóð nr. 118 við Langagerði.
Erindi fylgir samþykki eigenda Langagerðis 120 og 124, áritað á uppdrátt.
Stækkun, glerskáli: 17,5 ferm., 50,7 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. ágúst 2022 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2022. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 12. ágúst 2022.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. október 2022
fylgir erindi, einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 31. október 2022. Erindið var
grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Langagerði 110, 112, 114, 116 og 120, frá 19.
september til og með 17. október 2022. Engar athugasemdir bárust.