Haukahlíð 2
Haukahlíð 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1182
4. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
661005-1490 S8 ehf., Lágmúla 7, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja bílakjallara, mhl. 01 og tvo stigaganga undir mhl. 02 og 03, þ.e. Valshlíð 1 sem er fimm hæða fjölbýlishús með 21 íbúð og Valshlíð 3 sem er fimm hæða fjölbýlishús með 33 íbúðum, í kjallara eru geymslur, hjólageymslur, inntaksrými og brunastúka milli húss og bílageymslu og vagnageymsla er á jarðhæð á lóð nr. 2 við Haukahlíð. Stærðir: Mhl.01: 3.159,8 ferm., 8.654,5 rúmm. - Bílakjallari og stoðrými Mhl.02: 2.326,0 ferm., 6.633,1 rúmm. - Fjölbýlishús 21 íb. Mhl.03: 3.629,7 ferm., 10.433,7 rúmm. - Fjölbýlishús 33 íb. Erindi fylgir greinargerð aðalhönnuðar dags. 13. september 2022, greinargerð brunahönnuðar dags. 15. september 2022, greinargerð hljóðvistar dags. 14. júní 2022 og útreikningu varmataps dags. 13. september 2022. Erindi fylgir minnisblað, útreikningur á birtuskilyrðum dags. 15. september 2022, bréf hönnuðar dags. 19. júlí 2022 og skýrsla samgöngumats ráðgjafa dags. 18. júlí 2022. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. september 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 1. september 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 5. september 2022.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi
lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

102 Reykjavík
Landnúmer: 223517 → skrá.is
Hnitnúmer: 10115323