Hringbraut Landsp.
Hringbraut Landsp.
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1183
11. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
500810-0410 Nýr Landspítali ohf., Skúlagötu 21, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að reisa steinsteypt 8 hæða bílastæða- og tæknihús, þar af eru þrjár hæðir neðanjarðar, fyrir 510 bíla og 199 hjólastæði við Burknagötu nr. 30 sem verður mhl. 52 á lóð Landsspítalans við Hringbraut. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2022 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2022.Stærð, A-rými: 18.953 ferm., 65.143,8 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Vegna hæðasetningar og útsetningar á mannvirki skal haft samráð við skrifstofu
framkvæmda og viðhalds og landupplýsingadeild Reykjavíkurborgar.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með
vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í
samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.