Fyrirspurn
540504-4660 Fagverk verktakar ehf., Flugumýri 26, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að reisa forsteypta stoðveggi meðfram lóðarmörkum til norðurs og
norðvesturs, þ.e. núverandi stoðveggur við Norðurgrafaveg verður framlengdur að
lóðarmörkum við lóð nr. 2 við Koparsléttu, hæð veggjanna verði í sömu hæð og
núverandi stoðveggir, jafnframt er svæði steinefnalagers stækkað og verður allt að
8.000 fermetrar og 30.000 rúmmetrar að stærð, fyrirhugað er að nota metan í
framleiðslu og er því bætt við metangeymslu ofan á steypta botnplötu nærri
vestanverðri innkeyrslu lóðar nr. 4-8 við Koparsléttu.
Stækkun er: xx,x ferm., xx,x rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta sem samþykktir voru þann 5.
maí 2020 og 26. janúar 2021.