Grensásvegur 14
Grensásvegur 14
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1140
16. nóvember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
421014-1590 Opus fasteignafélag ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík 510117-0690 Heimaleiga ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík 441208-2190 Seggur ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi til að skipta 1. hæð upp í tvö séreignarými, rými 0101, innréttað sem þvottahús fyrir hótel og gistiheimili, og rými 0102 sem er óráðstafað, fjölga gluggum á suðurhlið, endurnýja loftræsiúrtök og koma fyrir þremur reykræsilúgum, koma fyrir nýrri vöruhurð og fjölga gluggum á norðurhlið auk þess sem loftræsikerfi er endurnýjað og stærðir leiðréttar í vörugeymslu,mhl.02, á lóð nr. 14 við Grensásveg. Breytingar á stærð: 2.3 ferm., -11.9 rúmm. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa á uppdrætti Alark nr. A101 og A102, dags. 9. nóvember 2021, tölvupóstur hönnuðar dags. 10. nóvember 2021, bréf hönnuðar dags. 9. nóvember 2021, greinargerð brunahönnuðar dags. 8. nóvember 2021 og afrit samþykktra aðaluppdrátta.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni
verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið
samþykki heilbrigðiseftirlits.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103852 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011529