Borgartún 41
Borgartún 41
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1138
2. nóvember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum lóðanna Borgartúns 41 og Hallgerðargötu 2 í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 01.11.2021. Lóðin Borgartún 41 (staðgr. 1.349.101, L104109) er 9024 m². Tekinn 1 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið (L218177). Lóðin Borgartún 41 (staðgr. 1.349.101, L104109) verður 9023 m². Lóðin Hallgerðargata 2 (staðgr. 1.349.401, L225431) er 2495 m². Teknir 27 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið (L218177). Lóðin Hallgerðargata 2 (staðgr. 1.349.401, L225431) verður 2468 m² og samanstendur af 2445 m² lóð og 23 m² lóðaskika. Sjá tillögu verkfræðistofunnar Eflu, fyrir hönd skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar Reykjavíkurborgar, í tölvupósti þann 09.09.2021 um breytingu á lóðamörkum lóðanna Borgartúns 41 og Hallgerðargötu 2. Sjá einnig umsögn skipulagsfulltrúa þann 28.10.2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104109 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007638