Hringbraut Landsp.
Hringbraut Landsp.
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1137
26. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
500810-0410 Nýr Landspítali ohf., Skúlagötu 21, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir neðanjarðar tengi- og lagnagöngum, mhl. 48, sem eru tengingar milli bílastæðahúss og meðferðarkjarna Landspítalans á lóð við Hringbraut Landspítala. Stækkun er: 1.196,5 ferm., 4.385,8 rúmm. Erindi fylgir greinargerð vegna hljóðvistar dags. október 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.