Hringbraut Landsp.
Hringbraut Landsp.
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1146
11. janúar, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
500810-0410 Nýr Landspítali ohf., Skúlagötu 21, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja rannsóknarhús nýs Landspítala, mhl.44, hús 22, við Hringbraut. Þyrlupallur og tengigangar eru ekki hluti af umsókn. Stærðir: 17.542 ferm., 93.950.2 rúmm. Erindi fylgir bréf Gunnars Svavarssonar framkvæmdarstjóra nýs Landsspítala vegna brunahönnunar dags. 15. desember 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með
vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í
samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið
samþykki Vinnueftirlits ríkisins.