Vísað til athugasemda.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.
19. Golfskálavegur 2-10 (41.2--.95) 110739 Mál nr. BN059598
580169-7409 Golfklúbbur Reykjavíkur, Pósthólf 12067, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á þremur hæðum auk kjallara austan við
æfingasvæði Bása, stækkun mun hýsa vélageymslu, verslun, móttöku, æfingasvæði og
veitingaaðstöðu í flokki II, tegund f., jafnframt eru gerðar breytingar við núverandi
æfingarsvæði með byggingu lyftuhúss, veggir hækkaðir og þak byggt yfir þriðju hæð,
salernisaðstaða við núverandi stiga á þriðju hæð og stiga komið fyrir á suðurhlið húss á
lóð nr. 2-10 við Golfskálaveg.
Stækkun: 1.898,2 ferm., 7.159,4 rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.