Vatnsholt 1
Vatnsholt 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1106
9. mars, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
540918-0820 Leigufélag aldraðra hses., Nönnubrunni 1, 113 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja tvö þriggja hæða fjölbýlishús með 51 íbúð með opnum svalagangi ásamt frístæðum hjóla- og sorpgeymslum fyrir hvort hús, að mestu úr forsteyptum samlokueiningum, að hluta klædd utan með timburklæðningum og verða nr. 1 og nr. 3 á lóð nr. 1 við Vatnsholt. Jafnframt er erindi BN057880 dregið til baka. Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 30. janúar 2021 og hljóðvistarskýrsla frá Hljóðtæknilausnir, útáfa 5, dags. 7. desember 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. mars 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021. Stærð, mhl. 01, A+B-rými: 2.046,9 ferm., 5.931,7 rúmm. Mhl. 02, A+B-rými: 2.275,3 ferm., 6.570,9 rúmm. Mhl. 03: 70,6 ferm., 190,4 rúmm. Mhl. 04: 56,5 ferm., 159,7 rúmm. Samtals A+B-rými: 4.449,3 ferm., 12.852,7 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 230038 → skrá.is
Hnitnúmer: 10136591