Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að búta lóðina Skúlagötu 11 niður í tvær lóðir Skúlagötu 11 og Skúlagötu 11A og borgarland á milli þeirra. Lóðin Skúlagata 11 (staðgr. 1.152.101, L101019) er 2775 m². Teknir 587 m² af lóðinni og gerðir að nýrri lóð, Skúlagötu 11A (staðgr. 1.152.102, L230824). Teknir 420 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið (L218177). Leiðrétt um -1 m² vegna fermetrabrota. Lóðin Skúlagata 11 (staðgr. 1.152.101, L101019) verður 1767 m². Ný lóð, Skúlagata 11A (staðgr. 1.152.102, L230824). Lagðir 587 m² til lóðarinnar frá Skúlagötu 11 (staðgr. 1.152.101, L101019). Lóðin Skúlagata 11A (staðgr. 1.152.102, L230824) verður 587 m². Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 06.06.2018, samþykkt í borgarráði þann 07.06.2018 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 15.06.2018.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.