Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðunum Hallgerðagötu 1A og 1B í lóðaskika sem verða hluti lóðarinnar Hallgerðargötu 1 í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt sem er dagsettur 05.10.2020. Lóðin Hallgerðargata 1A (staðgr. 1.349.303, L225429) er 23 m². Teknir 23 m² af lóðinni og bætt sem lóðaskika við lóðina Hallgerðargötu 1 (staðgr. 1.349.302, L225428).Lóðin Hallgerðargata 1A (staðgr. 1.349.303, L225429) verður 0 m² og verður afskráð. Lóðin Hallgerðargata 1B (staðgr. 1.349.304, L225430) er 23 m². Teknir 23 m² af lóðinni og bætt sem lóðaskika við lóðina Hallgerðargötu 1 (staðgr. 1.349.302, L225428).Lóðin Hallgerðargata 1B (staðgr. 1.349.304, L225430) verður 0 m² og verður afskráð. Lóðin Hallgerðargata 1 (staðgr. 1.349.302, L225428) er 2909 m². Bætt 23 m² við lóðina sem lóðaskika frá lóðinni Hallgerðargötu 1A (staðgr. 1.349.303, L225429). Bætt 23 m² við lóðina sem lóðaskika frá lóðinni Hallgerðargötu 1B (staðgr. 1.349.304, L225430). Lóðin Hallgerðargata 1 (staðgr. 1.349.302, L225428) verður 2955 m² og samanstendur af lóðinni Hallgerðargötu 1 sem er 2909 m² og lóðaskikunum Hallgerðargötu 1A sem er 23 m² og Hallgerðargötu 1B sem er 23 m². Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði þann 21.08.2019 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 10.09.2019.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.