Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN026325 vegna lokaúttektar sem felast í leiðréttingu á skráningu séreignarflata á lóð, bílastæða og geymslna í bílageymslu og sameign á 2. hæð og lagfæringum vegna stöðuúttektar 6. mars 2014. Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af eldri teikningum. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.