Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans á hnitsettum uppdrætti af lóðinni Vesturgötu 30 í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt sem er dagsettur 24.02.2020. Lóðin Vesturgata 30 (staðgr. 1.131.215, L100183) er talin í fasteignaskrá 498,5 m². Lóðin Vesturgata 30 (staðgr. 1.131.215, L100183) reynist eftir hnitsetningu 508 m². Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði þann 24.05.2017, samþykkt í borgarráði þann 01.06.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 26.10.2017.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.