Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi rishæðar vesturálmu (2. hæðar), settir verða upp nýir skilveggir og skrifstofurýmum/fundarherbergjum er fjölgað úr tveimur í sex, í húsi á lóð nr. 8 við Guðrúnartún. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 3. janúar 2020. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.