Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stækka lóðina Grandagarð 2 í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 08.11.2019. Lóðin Grandagarður 2 (staðgr. 1.115.301, L100058) er talin 3569 m². Lóðin reynist 3570 m². Teknir 8 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið (L218177). Bætt 471 m² við lóðina frá óútvísaða landinu (L218177). Lóðin Grandagarður 2 (staðgr. 1.115.301, L100058) verður 4033 m². Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 07.03.2018, samþykkt í borgarráði þann 08.03.2018 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 08.05.2018.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.