Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum lóðarinnar, Efstaleitis 19, afleggja tvær djúpgámalóð og stofna tvo nýja djúpgámaskika sem hluta af lóðinni Efstaleiti 19, í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 23.09.2019. Lóðin Efstaleiti 19 (staðgr. 1.745.201, L224636) er 9642 m². Bætt 26 m² við lóðina, sem lóðaskika, frá Efstaleiti 23A (staðgr. 1.745.204, L227093). Lóðaskikinn fær staðfangið 23A. Bætt 54 m² við lóðina, sem lóðaskika, frá Lágaleiti 7A (staðgr. 1.745.205, L227094). Lóðaskikinn fær staðfangið Lágaleiti 7A. Lóðin Efstaleiti 19 (staðgr. 1.745.201, L224636) verður 9722 m² og samanstendur af lóðinni Efstaleiti 19 sem er 9642 m² og lóðaskikunum, Efstaleiti 23A sem er 26 m² og Lágaleiti 7A sem er 54 m². Lóðin Efstaleiti 23A (staðgr. 1.745.204, L227093) er 26 m². Teknir 26 m² af lóðinni og bætt sem lóðaskika við lóðina Efstaleiti 19 (staðgr. 1.745.201, L224636). Lóðin Efstaleiti 23A (staðgr. 1.745.204, L227093) verður 0 m² og verður lögð niður. Lóðin Lágaleiti 7A (staðgr. 1.745.205, L227094) er 54 m². Teknir 54 m² af lóðinni og bætt sem lóðaskika við lóðina Efstaleiti 19 (staðgr. 1.745.201, L224636). Lóðin Lágaleiti 7A (staðgr. 1.745.205, L227094) verður 0 m² og verður lögð niður. Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 21.03.2018 og auglýsta í B-deild Stjórnartíðinda þann 12.04.2018.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.