Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðarmörkum lóðarinnar Birkimels 3, í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 08.07.2019. Lóðin Birkimelur 3 (staðgr. 1.550.102, landeignarnr. L106506) er 281 m². Teknir 50 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið (landeignarnr. L221448). Bætt 50 m² við lóðina frá óútvísaða landinu (landeignarnr. L218177). Lóðin Birkimelur 3 (staðgr. 1.550.102, landeignarnr. L106506) er áfram 281 m².