Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stækka lóðina Klapparstíg 16 og minnka samsvarandi lóðina Smiðjustíg 10 í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 13.06.2019 og 28.12.1979. Lóðin Klapparstígur 16 (staðgr. 1.151.505, landeignarnr. L101010) er talin 454 m². Lóðin er 449 m². Bætt 41 m² við lóðina frá Smiðjustíg 10 (staðgr. 1.151.510, landeignarnr. L101015). Leiðrétt um -1 m² vegna fermetrabrota. Lóðin Klapparstígur 16 (staðgr. 1.151.505, landeignarnr. L101010) verður 489 m². Lóðin Smiðjustígur 10 (staðgr. 1.151.510, landeignarnr. L101015) er talin 803 m². Lóðin var, samkv. breytingablaði dags. 28.12.1979, talin 700 m². Lóðin reynist 697 m². Teknir 41 m² af lóðinni og bætt við Klapparstíg 16 (staðgr. 1.151.505, landeignarnr. L101010). Lóðin Smiðjustígur 10 (staðgr. 1.151.510, landeignarnr. L101015) verður 656 m². Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði þann 10.04.2019 og auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 19.04.2019.