Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að bæta skika við lóðina Skektuvog 2 í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 13.05.2019. Lóðin Skektuvogur 2 (staðgr. 1.450.301, landeignar nr. L225185) er 3628 m². Bætt 37,5 m² skika við lóðina frá óútvísaða landinu (landeignar nr. L218177) sem fær staðfangið Skektuvogur 2A. Lóðin Skektuvogur 2 (staðgr. 1.450.301, landeignar nr. L225185) verður 3665 m² og samanstendur þá af lóðinni Skektuvogi 2 sem er 3628 m² og skikanum Skektuvogi 2A sem verður 37,5 m². Sjá deiliskipulagi sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 08.02.2017, samþykkt í borgarráði þann 19.02.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 06.03.2017.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.