Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum lóðarinnar Nýlendugötu 7 í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 02.04.2019. Lóðin Nýlendugata 7 (staðgr. 1.132.019, L100209) er talin 292 m². Lóðin reynist 293 m². Teknir 8 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið (L218177). Bætt 4 m² við lóðina frá óútvísaða landinu (L218177). Leiðrétt um +1 m² vegna fermetrabrota. Lóðin Nýlendugata 7 (staðgr. 1.132.019, L100209) verður 290 m². Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 17.08.2018 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 05.09.2018.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.