Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna nýja lóð Framnesveg 31B, samanber meðfylgjandi uppdrætti dagsetta 12.11.2018. Lóðin Sólvallagata 68 (staðgr. 1.134.510, L100394) er talin 1242,8 m². Lóðin reynist 1319 m². Teknir 428 m² af lóðinni og bætt við lóðina Framnesveg 31B (staðgr. 1.134.517, L226399). Lóðin Sólvallagata 68 (staðgr. 1.134.510, L100394) verður 891 m². Ný lóð Framnesvegur 31B (staðgr. 1.134.517, L226399). Bætt 428 m² við lóðina frá Sólvallagötu 68 (staðgr. 1.134.510, L100394). Lóðin Framnesvegur 31B (staðgr. 1.134.517, L226399) verður 428 m². Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt í skipulagsráði þann 11.04.2012, samþykkt í borgarráði þann 26.04.2012 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 12.06.2012.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.