Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna tvær nýjar lóðir, samanber meðfylgjandi uppdrátt dags. 14.05.2018. Ný lóð Rökkvatjörn 2 (staðgr. 5.052.501, landeignarnr. L226871). Lóðin er stofnuð með því að taka 2754 m² úr óútvísaða landinu (landeignarnr. 2212447). Lóðin Rökkvatjörn 2 (staðgr. 5.052.501, landeignarnr. L226871) verður 2754 m². Ný lóð Silfratjörn 1 (staðgr. 5.052.502, landeignarnr. L226872). Lóðin er stofnuð með því að taka 3247 m² úr óútvísaða landinu (landeignarnr. 2212447). Lóðin Silfratjörn 1 (staðgr. 5.052.502, landeignarnr. L226872) verður 3247 m². Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 27.09.2017, samþykkt í borgarráði þann 05.10.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 19.02.2018.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.