Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna nýja lóð, samanber meðfylgjandi uppdrátt dags. 14.05.2018. Ný lóð Silfratjörn 2 (staðgr. 5.052.601, landeignarnr. L226870). Lóðin er stofnuð með því að taka 6885 m² úr óútvísaða landinu (landeignarnr. 2212447). Lóðin Silfratjörn 2 (staðgr. 5.052.601, landeignarnr. L226870) verður 6885 m². Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 27.09.2017, samþykkt í borgarráði þann 05.10.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 19.02.2018.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.