Þann 8. maí 2018 sl. var samþykkt að byggja tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu úr forsteyptum einingum einangrað að utan og klætt með álklæðningu á lóð nr. 1 við Freyjubrunn en er nú lagt fram að nýju til leiðréttingar á bókun. Rétt bókun er: Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða staðsteypt einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu, einangrað að utan og klætt með álklæðningu á lóð nr. 1 við Freyjubrunn.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.