Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að leggja niður 1 gámalóð og stofna aðra nýja, samanber meðfylgjandi uppdrætti dagsetta 02.05.2018. Lóðin Lágaleiti 13A (staðgr. 1.745.302, landeignarnr. L224641) er 26 m². Teknir 26 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið (landeignarnr. L221448) Lóðin Efstaleiti 13A (staðgr. 1.745.302, landeignarnr. L224641) verður 0 m² og verður lögð niður. Ný lóð (staðgr. 1.745.302). Bætt 26 m² við lóðina frá óútvísaða landinu (landeignarnr. L221448). Lóðin (staðgr. 1.745.302) verður 26 m² og fær lóðanúmer og landeignanúmer samkv. ákvörðun byggingafulltrúa. Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði þann 21.03.2018 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 12.04.2018.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.