Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að sameina lóðirnar Urðarbrunn 10 og 12 í eina lóð, samanber meðfylgjandi uppdrætti dagsetta 23.04.2018. Lóðin Urðarbrunnur 10 (staðgr. 5.056.202, landeignarnr. 205770) er 602 m². Bætt 498 m² við lóðina frá Urðarbrunni 12. Bætt 6 m² við lóðina frá óútvísaða landinu (landnr. 221447). Lóðin Urðarbrunnur 10 (staðgr. 5.056.202, landeignarnr. 205770) verður 1106 m². Lóðin Urðarbrunnur 12 (staðgr. 5.056.203, landeignarnr. 205771) er 498 m². Teknir 498 m² af lóðinni og bætt við Urðarbrunn 10 (staðgr. 5.056.202, landeignarnr. 205770). Lóðin Urðarbrunnur 12 (staðgr. 5.056.203, landeignarnr. 205771) verður 0 m² og verður lögð niður. Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 27.09.2017, samþykkt í borgarráði þann 05.10.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 19.02.2018.