Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að skipta lóðinni Úlfarsbraut 100 - 110 í tvær lóðir, Úlfarsbraut 100 og Úlfarsbraut 106, samanber meðfylgjandi uppdrætti dagsetta 12.03.2018.
Lóðin Úlfarsbraut 100 - 110 (staðgr. 2.698.506, landnr. 205750) er 1456 m². Teknir 728 m² af lóðinni og lagt undir nýja lóð Úlfarsbraut 106 (staðgr. 2.698.509, landnr. xxxxxx). Lóðin Úlfarsbraut 100 - 110 (staðgr. 2.698.506, landnr. 205750) verður 728 m² og fær nýtt staðfang Úlfarsbraut 100.
Ný lóð Úlfarsbraut 106 (staðgr. 2.698.509, landnr. xxxxxx). Teknir 728 m² af Úlfarsbraut 100 (staðgr. 2.698.506, landnr. 205750). Lóðin Úlfarsbraut 106 (staðgr. 2.698.509, landnr. xxxxxx) verður 728 m² og fær landnúmer samkvæmt ákvörðun byggingarfulltrúa. Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 27.09.2017, samþykkt í borgarráði þann 05.10.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 19.02.2018.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.