Sótt er um leyfi til að byggja lárétt gólf yfir eldri hallandi plötu og létta palla og tröppur beggja megin í sal og til að breyta fyrirkomulagi í forsal Austurbæjarbíós á lóð nr. 37 við Snorrabraut. Jafnframt er erindi BN052613 fellt úr gildi. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.