Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stækka lóðina Bíldshöfða 12 samanber meðfylgjandi uppdrætti landupplýsingadeildar dagsettir 27.10.2017. Lóðin Bíldshöfði 12 (staðgr. 4.064.101, landnr. 110669) er 4858 m². Bætt 525 m2 við lóðina frá óútvísaða landinu (landnr. 221447). Bætt 1 m2 við lóðina vegna fermetrabrota. Lóðin Bíldshöfði 12 (staðgr. 4.064.101, landnr. 110669) verður 5384 m². Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt í skipulagsráði þann 29.06. 2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 17.08.2005.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.