Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 946
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir undirstöður, botnplötu og lagnir í grunn fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 92 við Hverfisgötu sbr. erindi BN052439.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101563 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022405
Síðasta markaðsverð
90.000.000 kr.
Bílskúr/skúr · 91 m² · 14.03.2024
Kaupskrá 4 eignir
90.000.000 kr. 14.03.2024
Bílskúr/skúr · 91 m² · bygg. 2021 · HMS
134.900.000 kr. 01.03.2024
Bílskúr/skúr · 151 m² · bygg. 2021 · HMS
56.004.000 kr. 04.04.2022
Atvinnuhúsnæði · 112 m² · bygg. 2021 · HMS
19.000.000 kr. 23.01.2007
Sérbýli · 70 m² · bygg. 1920 · HMS
Deiliskipulag
Stgr. 1.174.0 Laugavegur, Vitastíg,ur Hverfisgata og Barónsstígur
Samþykkt 10.12.2011 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag