Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans á breytingu lóðamarka lóðarinnar Pósthússtrætis 1, samanber meðfylgjandi breytingablað og lóðaruppdrátt, 1.118.5, dagsett 26. 04. 2017. Lóðin er óbreytt að stærð og lögun en færist. Lóðin Pósthússtræti 1 (staðgr. 1.118.506, landnr. 100102) er 36 m², teknir eru 36 m² af lóðinni og bætt við óútvísað land (landnr. 218177), teknir eru 36 m² úr óútvísuðu landi (landnr. 218177) og lagt við lóðina, lóðin verður 36 m². Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis-og skipulagsráði þann 08.02.2017, samþykkt í borgarráði þann 23. 02. 2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 12. 04. 2017. Sjá tölvupóst frá OR 27.02.2017.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.