Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að sameina lóðirnar Framnesveg 42 og 42A í eina lóð í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti dagsetta 4.4.2017. Lóðin Framnesvegur 42 (staðgr. 1.133.414, landnr. 100292) er 144 m² Bætt 136 m² við lóðina frá Framnesvegi 42A Lóðin Framnesvegur 42 (staðgr. 1.133.414, landnr. 100292) verður 280 m². Lóðin Framnesvegur 42A (staðgr. 1.133.415, landnr. 100293) er 136 m² Teknir 136 m² af lóðinni og bætt við Framnesvegur 42 Lóðin Framnesvegur 42A (staðgr. 1.133.415, landnr. 100293) verður 0 m² og hverfur úr skrám. Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 30. 11. 2016, samþykkt í borgarráði þann 08. 12. 2016 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 27. 01. 2017. Sjá einnig meðfylgjandi afrit af tölvupósti dags. 15. mars 2017 þar sem farið er fram á þessa sameiningu.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.