Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta skrifstofurýmum í íbúðarherbergi til skammtímaleigu (gististað) til ferðafólks í húsnæðinu á lóð nr. 35 við Suðurhlíð. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. apríl 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2015.
Svar
Nei. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2015.