Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans í Reykjavík á nýju mæliblaði fyrir lóðina Skarfagarða 3, afgreiðsluhús Viðeyjarferju, mæliblaðið er í samræmi við deiliskipulag Klettasvæðis sem samþykkt var hjá Umhverfis og skipulagsráði 9. júlí 2014 og auglýst í B-tíðindum Stjórnartíðinda 25. júlí 2014.
Um er að ræða nýja lóð á Klettasvæði og er lóðin tekin úr óútvísuðu landi
Faxaflóahafna sf.
í Sundahöfn.