Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 22. janúar sl. var samþykkt erindi BN045366 svohljóðandi: Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi íbúðar á þriðju hæð í húsi nr. 5 á lóðinni nr. 1-5 við Hverafold. Rétt bókun hljóðar svo: Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi nýsamþykktrar íbúðar, sjá erindi BN044250, í húsi nr. 5 á lóð nr. 1-5 við Hverafold. Þetta leiðréttist hér með.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.