Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum lóðarinnar Árvað 1 (staðgr. 4.734.401, landnr. 206710), þannig að hún deilist upp í tvær lóðir og hluti hennar hverfi undir borgarland, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar dagsettum 31.10.2012. Lóðin Árvað 1 (staðgr. 4.734.401, landnr. 206710) er 8792 m², af lóðinni eru fyrst teknir 244 m² og lagðir við borgarlandið (landnr. 218177), og síðan eru teknir 6639 m² af lóðinni og gert að nýrri lóð, Norðlingabraut 2. Lóðin Árvað 1 (staðgr. 4.734.401, landnr. 206710) verður 1909 m². Ný lóð, Norðlingabraut 2 (staðgr. 4.734.402, landnr. 221180) verður 6639 m². Sbr. deiliskipulag sem samþykkt var borgarráði þann 30. 10. 2008 og á embættisfundi skipulagsfulltrúa 09. 01. 2009. Sbr. og auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, dags. 04. 05. 2009.