Sótt er um leyfi til þess að staðsetja 2,5 ferm. gróðurhús (matshl. 05) úr gleri og áli austan við húsið á lóðinni nr. 33 við Suðurgötu. Samþykki meðlóðarhafa og samþykki nágranna í húsi nr. 31 við Suðurgötu, bæði dags. 25.07.2012 fylgja erindinu. Stærð: Gróðurhús, matshluti 05, 2,5 ferm. og 4,8 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 408
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Vakin er athygli á að framkvæmd þarfnast ekki byggingarleyfis samkvæmt gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.