Faxaflóahafnir sf.
óska eftir samþykki á breytingu mæliblaðs og skráningu lóðar. Lóðin Klettagarðar nr. 4 er stækkuð miðað við eldri lóð og er stækkunin í samræmi við samþykkt skipulagsstjóra þann 6. janúar 2012 og staðfest með auglýsingu í B- stjórnartíðindum þann 7 febrúar 2012. Breytingin felur í sér að lóðin er stækkuð um 1.744 m2, lóðin var fyrir breytingu 6.860 m2 og verður eftir breytingu 8.604m2. Málinu fylgir bréf
Faxaflóahafna sf.
dags. 27. febrúar 2012.