Sótt er um leyfi til breytinga á eldvörnum er varðar "slökkvikerfi fyrir eldunaraðstöðu" í rýmum 0104 og 0105 í mhl. 02 í verslanamiðstöð nr. 6 á lóð nr. 2-6 við Lóuhóla. Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 23.2. 2011 og yfirlýsing húseiganda dags. 23.2. 2011. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.