Sótt er um endurnýjun á erindi BN039644, sem felst í að skipta einbýlishúsi í tvær íbúðareiningar með sameiginlegri lóð, setja kvist á þakflöt í norður og skipta um bárujárnsklæðningu á íbúðarhúsi á lóð nr. 46B við Laugaveg. Stærðir: Kjallari 52,9 ferm., íbúð 01, 1. hæð 52,5 ferm., 2. hæð 35,7 ferm., samt. 88,2 ferm., íbúð 02, 34,1 ferm., Samtals allt húsið: 175,2 ferm., 476,6 rúmm. Stækkun 8,36 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 644
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.