Spurt er hvort leyfi fengist til að skreyta húsgafl og hvort styrkur fengist fyrir framkvæmdum vegna listræns gildis sem því fylgir, vegna hversu áberandi veggurinn er á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 159 við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. janúar 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 15. janúar 2010.
Svar
Jákvætt. Að skreyta gafl enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi samþykki húseigenda. Ekki verður um kostanaðarþáttöku eða styrk Reykjavíkurborgar vegna málsins.