Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum sem felst í að breyta verslunarrými 0103 í íbúð, breyta gluggum, setja þakglugga á rishæð, íbúð 0104 breytt svo að hjólastólafólk getur notað hana og loka milli hæða rýmis 0506, 0505 og 0406, 0405 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 13-15 við Naustabryggju. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. júní 2008 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 9. desember 2008. Stækkun: 0,7 ferm., 166,7 rúmm. Gjald kr. 7.300 + 7.700 + 12.836
Svar
Frestað. Umsækjandi láti vinna deiliskilulag á eigin kostnað sem grenndarkynnt verður berist það.